29 hönnun — íslenskt vefstúdíó

Við smíðum framúrskarandi vefsíður og hugbúnað.

Íslenskt vefstúdíó sem sérhæfir sig í vefsíðuhönnun, vefsíðugerð og sérsmíðuðum lausnum. Við hönnum fallega, hraða vefi sem selja.

Vefsíða Lagom
Lagomlagom.is
Frí uppsetning

Einföld vefsíða

0 kr. uppsetning
6.900 kr./mán. án vsk*
Sjá dæmi — Zero Rafverktakar

Fullkomin fyrir smærri fyrirtæki sem þurfa einfalda og faglega viðveru á netinu.

  • Ein vönduð síða
  • Þitt eigið .is lén
  • Snjallsímavæn hönnun

Fyrirtækjavefur

Verð frá
99.000 kr.án vsk
+ 6.900 kr./mán. án vsk*
Sjá dæmi — Penge

Heildstæður fyrirtækjavefur fyrir fyrirtæki sem vilja sýna þjónustu sína betur og finnast á leitarvélum.

  • Nokkrar undirsíður
  • Sérsniðin uppsetning
  • SEO / leitarvélabestun
  • Snjallsímavæn hönnun
  • Netfang á þínu léni

Sérsniðið

Fyrir stærri verkefni sem þurfa sérhæfða virkni.

  • Netverslun
  • Bókunarvél
  • Tenging við greiðsluhirði
  • Aðrar sérsniðnar lausnir

*Öll verð eru án vsk. Áskriftin er 6.900 kr. á mánuði og innifelur hýsingu vefsíðunnar, .is lén, vöktun á uppitíma og lagfæringar á tæknilegum villum. Frí uppsetning er með 12 mánaða binditíma. Eftir það er 1 mánaðar uppsagnarfrestur.

Vefir sem við höfum hannað

Algengar spurningar.

Hvað kostar að láta gera vefsíðu?

Einföld vefsíða er með fríri uppsetningu og þú greiðir aðeins áskrift, 6.900 kr. á mánuði án vsk. Fyrirtækjavefur kostar frá 99.000 kr. án vsk auk áskriftar, og stærri verkefni eins og netverslanir og bókunarkerfi fá sérstakt tilboð.

Hvað er innifalið í áskriftinni?

Áskriftin (6.900 kr./mán. án vsk) innifelur hýsingu vefsins, .is lén, vöktun á uppitíma og lagfæringar á tæknilegum villum. Þú þarft ekki að hugsa um neitt tæknilegt.

Hvað tekur langan tíma að smíða vefinn?

Fyrstu drög eru tilbúin innan fárra daga og einföld vefsíða er yfirleitt komin í loftið á um 5 dögum eftir að við fáum efnið frá þér.

Þarf ég að eiga lén áður en ég byrja?

Nei. Við hjálpum þér að finna og kaupa lén (t.d. fyrirtaeki.is) ef þú átt það ekki nú þegar, og setjum það upp fyrir þig. Þú átt alltaf lén og efnið.

Get ég fengið netfang á mínu eigin léni?

Já. Í Fyrirtækjavef fylgir uppsetning á netfangi eins og info@fyrirtaeki.is.

Birtist vefurinn á Google?

Já. Við setjum upp grunn SEO, sendum sitemap til Google og hjálpum þér með leitarvélabestun svo þú finnist í leitarniðurstöðum.

Get ég selt vörur eða tekið við bókunum?

Já — við getum bætt við vefverslun með greiðslugátt eða bókunarkerfi fyrir t.d. hárgreiðslustofur, veitingastaði eða þjónustu. Það fellur undir sérsniðin verkefni.

Er einhver binding eða samningur?

Fría uppsetningin er með 12 mánaða áskriftarsamningi (6.900 kr./mán. án vsk). Að öðru leyti er engin löng binding. Þú getur hætt hvenær sem er með 1 mánaðar uppsagnarfresti.

Hver á vefinn ef ég hætti?

Þú átt lénið og efni vefsins. Ef þú segir upp áskriftinni getum við afhent þér afrit af efninu þínu.

29 hönnun er íslenskt vefstúdíó sem sérhæfir sig í vefsíðuhönnun, vefhönnun og vefsíðugerð. Við hönnum fallega, hraða vefi fyrir fyrirtæki, veitingastaði og frumkvöðla. Fáðu fría prufuútgáfu án skuldbindingar.